JÆJA!

Gerum bílferðir skemmtilegri

Leikir, fróðleikur og samvera – allt í einni bók

JÆJA! - Leikjabók fyrir ferðalög

Hvað er í bókinni?

Fjölbreyttir leikir

Leikir sem halda athyglinni, fá alla til að taka þátt og gera ferðalagið skemmtilegt frá upphafi til enda.

Samskipti & samvera

Leikir sem fá fjölskylduna til að tala saman, hlæja og kynnast betur á ferðinni.

Fræðandi & forvitnilegt

Verkefni sem vekja áhuga á Íslandi og fá börn til að spyrja spurninga og læra á skemmtilegan hátt.

Athugun & umhverfi

Leikir sem fá börn til að líta út um gluggann, taka eftir og tengjast því sem þau sjá.

Tússpenni

Með hverju eintaki fylgir ókeypis tússpenni með innbyggðum töfluhreinsi á lokinu.

Endurnýtanlegt

Hægt að nota aftur og aftur, þú bara tússar og strokar eins og þú vilt.

Skráðu þig á pöntunarlista

Við höfum samband og klárum kaupin

Við sendum aldrei ruslpóst. Upplýsingar eru eingöngu notaðar til að senda bókina.

Viltu frekar borga strax með PayPal?

Þegar þú kaupir á netinu verður þú að borga í evrum, það er það eina sem er í boði

Saga Jæja

Við stofnuðum Jæja af því að okkur fannst foreldrar oft ekki hafa marga heilbrigða valkosti til að gefa börnum sínum í bílferðum. Annað hvort leiðist börnunum alla ferðina, eða þá gefa foreldrar þeim snjalltæki til að drepa tímann, ekki af því að þeim langar það heldur vegna þess að það er ekki margt annað í boði. Okkar markmið er að breyta því.

Til að ná því markmiði bjuggum við til bók sem inniheldur 30 blaðsíður með skemmtilegum leikjum og áhugaverðum fróðleik. Áhersla leikjanna er á að auka samskipti í bílnum, vekja forvitni og áhuga á Íslandi, bæta læsi og málkunnáttu, og fá krakkana til að skemmta sér án snjalltækja. Ásamt leikjunum er fróðleikur um Ísland og mismunandi landshluta.

Við vonum að þessi bók muni gera sumarið aðeins ánægjulegra.
Góða ferð!

Tilbúin í ferðalagið?

Panta bók